23.01.2012 13:37

Aðalfundur/vetrarfagnaður

AÐALFUNDUR-VETRARFAGNAÐUR

Jæja þá er komið að aðalfundi/vetrarfagnaði hjá okkur í ferðaklúbbnum.  Verður hann haldinn í LÍKNAR-salnum laugardaginn 28.janúar kl.18:00.  Að aðalfundi loknum ætlum við að borða saman kvöldverð, rifja upp síðasta ferðasumar og skemmta okkur saman. 

Eins og fólk kannski vissi þá var stefnt að því að hafa aðalfund í nóvember síðastliðnum sem ekkert varð úr vegna þess að við ákváðum að breyta þessu í samræmi við lög félagsins þar sem ætlast til að aðalfundur sé í janúar ár hvert og finnst okkur það vera skynsamlegra og henta betur og var því tekin ákvörðun um að breyta þessu og vonum að fólk sé sátt við þessa breytingu.

Ég vona að sem flestir sjái sér fært um að mæta og efla félagið okkar.
Við erum svo heppin að við erum búin að fá fólk sem vill vinna með okkur í stjórninni þannig að við erum vel sett þar :)

Munið
að skrá ykkur fyrir 25.janúar svo við vitum svona c.a hve margir verða í mat

Sjáumst hress á laugardaginn :)

19.10.2011 22:03

Stjórnarfundur í nóvember

Jæja þá er enn einu ferðasumrinu lokið, síðustu fuglarnir komnir úr síðustu útilegunum. Takk öll fyrir skemmtilegt ferðasumar.
Nú styttist í að við ætlum að hittast öll saman svona áður en fólk leggst í dvala í vetur.
Fyrirhugað er að halda aðalfund Heimakletts núna í nóvember, fundurinn verður auglýstur nánar þegar nær dregur. 
    Flettingar í dag: 3
    Gestir í dag: 2
    Flettingar í gær: 42
    Gestir í gær: 14
    Samtals flettingar: 76630
    Samtals gestir: 25439
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 06:35:23
    clockhere