Færslur: 2012 Febrúar
28.02.2012 13:22
Ný könnun
Komin ný skoðanakönnun, endilega hjálpið okkur við tjaldkaupin og takið þátt
Skrifað af Guðný Halldórsdóttir
28.02.2012 11:21
Fréttir af aðalfundi
Seint koma fréttir en koma þó......ég átti í pínu veseni með að komast inn á heimasíðuna en það hófst þó á endanum.
Aðalfundurinn hjá félaginu var haldinn 28.janúar síðastliðin og var þrusu góð mæting, aldrei verið jafn margt á aðalfundi sem er frábært. Það helsta sem er að frétta er að búið er að skipuleggja allar ferðir sumarsins. Fyrsta útilega sumarsins verður eins og vant er í Skátastykkið helgina 18.-20.maí, sú næsta er "Gaman saman" útilegan og verður hún eins og síðustu ár í Aratungu en að þessu sinni verður sú útilega helgina 8.-10.júní, húsið var ekki laust um 17.júní helgina. Júlí útilegan verður á Úlfljótsvatni og verður stílað inn á börnin í þeirri útilegu, fjórða og síðasta útilegan okkar verður "kósý-ferð á Suðurlandinu" helgina 24.-26.ágúst þar sem við hvetjum fólk til að taka seríur og kertaluktir með sér og mynda kósý stmmningu hjá okkur í myrkrinu, ekki er endanlega ákveðið hvar við verðum þessa helgi en við munum láta ykkur vita þegar það er komið á hreint.
Helstu fréttir af aðalfundi voru samt þær að stjórnin kom með tillögu um að félagið myndi fjárfesta á næstu árum í partýtjald sem við gætum haft í þeim ferðum sem við förum í og þar væri hægt að koma saman og borða, spila og syngja á kvöldin og fleira, það var afar ánægjulegt að sjá hvað fólk var jákvætt fyrir þessu og kom Böddi með tillögu um að við myndum bara hækka árgjaldið þetta árið í 3000 kr. og bara drífa í að kaupa tjaldið fyrir sumarið, var þessi samþykkt snarlega og erum við farin að skoða tjöld fyrir okkur. Ég er búin að fá tilboð frá Seglagerðinni Ægi í 30 og 40 fm tjöld, bæði notuð og ný og eru verðin eftirfarandi:
30 fm-nýtt=>382.470 kr.
30 fm-notað=>215.139 kr.
40 fm-nýtt=>454.183 kr.
40 fm-notað=>247.012 kr.
Hvað segir fólk um þetta, finnst ykkur við þurfa stærra eða minna en þetta......og hvað með nýtt eða notað, þetta eru 1-2 ára gömul tjöld sem þeir eru að selja, óskemmd.....við erum ekki búin að skoða þessi tjöld. Og vitið þið hvaða fleiri staðir eru með svona tjöld???
Á aðalfundinum vorum við með nýtt fréttabréf sem við dreifðum til þeirra sem mættu en ætlum ekki að senda það út að þessu sinni nema til þeirra sem búa uppá Íslandinu en þeir sem vilja fá fréttabréf geta nálgast það til mín; Guðnýjar að Birkihlíð 23.
Aðalfundinn enduðum við svo á að borða góðan mat saman sem stjórnin eldaði og spjölluðum saman frameftir kvöldi yfir Iris caffé......skemmtilegt kvöld í góðum félagsskap :)

- 1
Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 38
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 80908
Samtals gestir: 27281
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:17:32
Tenglar
- Heimaklettur á facebook
- Félag húsbílaeigenda
- Húsvagnafélagið
- Flakkarar
- Ellingsen
- Ferðahýsi
- Seglagerðin Ægir
- Útilegumaðurinn
- Víkurverk
- P. Karlsson-Umboðsaðili LMC á Íslandi
- Átthagafélag Vestmannaeyja
- Bensín og olíur
- Útilegukortið
- Veðrið
- Bilaraf
- N1
- Tjaldsvæðið á Hellu
- Tjaldsvæðið á Hellishólum
- Tjaldsvæðið Reykholti
Eldra efni