Gestabók
25.7.2011 kl. 21:32
Á döfinni:
Er eitthvað á döfinni í ágúst og eða september, hjá Heimakletti.
kv. Einar
Einar Steingrímsson
13.6.2011 kl. 23:12
Gaman saman og félagsskírteini Stjána
Stjáni við skulum fara í málið strax í fyrramálið....en að sjálfsögðu mæti þið þó félagsskírteinið verði ekki komið, það verður að minnsta kosti komið strax eftir helgina :) Hlökkum til að sjá ykkur :)
Guðný Halldórsdóttir
13.6.2011 kl. 20:48
Gaman saman ef maður verður búinn að fá félagsskýrteinið
Heil og sæl við Emma ætlum að mæta ef við verðum komin með skýrteinin ( Heimaklettur )
Það verður gaman að sjá ykkur í stuði.
Kveðja Stjáni
Kristján Óskarsson
11.6.2011 kl. 0:28
við mætum
kalli og jona
10.6.2011 kl. 20:07
Tjaldstæðið í Eyjum
Ágætu félagar tökum undir með Tryggva Má í Eyjafrettum og ítum á bæjarfulltrúa um nýtt og betra tjaldstæði. þetta er okkur til skammar og á og í mesta veðravíti Eyjanna við Þórsheimilið.
Sjáumst svo sem flest á Gaman Saman eftir viku
Einar Steingrímsson
12.5.2011 kl. 1:14
útilega
Við mætum í fjörið.
Krissa og Silli
10.5.2011 kl. 23:40
við mætum
við mætum.
kalli og jona
10.5.2011 kl. 10:23
Til í það!!!
Inda
8.5.2011 kl. 23:39
Við mætum í Eurovision fjöri :)
Gústi og Guðný
8.5.2011 kl. 15:04
Skátastikki
Ætla margir þangað. Spáin er þokkalega góð. Hvernig væri að mæta vel og hafa eurovisjón teiti.
Einar Steingrímsson
29.3.2011 kl. 22:03
Ok!! mundi ekki hvaða daga hún er
Inda Marý Friðþjófsdóttir
29.3.2011 kl. 21:58
Dagsetningin er 13.-15.maí 2011
Guðný
29.3.2011 kl. 21:57
Dagsetningin er 13.-15.maí 2011
Guðný
29.3.2011 kl. 20:46
Hvaða mánaðardag er útilegan í maí??Þið eigið eftir að standa ykkur vel stelpur!!
Inda Marý Friðþjófsdóttir
29.3.2011 kl. 20:45
Hvaða mánaðardag er útilegan í maí??Þið eigið eftir að standa ykkur vel stelpur!!
Inda Marý Friðþjófsdóttir
28.3.2011 kl. 23:49
Facebook síða Heimakletts
Ég aftur.....ég var að stofna facebook síðu fyrir þá sem eru með það.....endilega verið dugleg að bæta inn félögum sem þið eruð vinir.....ætlum allavega að prufa þetta líka :)
Með von um jákvæð viðbrögð við þessu
Kveðja Guðný
Guðný
28.3.2011 kl. 23:46
Allt að gerast :)
Sælt veri fólkið
Heyri að fólk hefur miklar áhyggjur af nýrri stjórn.....en það eru óþarfa áhyggjur því hjá okkur er allt að gerast.....erum að vinna í heimasíðumálunum, það verður komið í lag öðruhvoru megin við helgina og þá hafið þið ekki undan að lesa allar nýju upplýsingarnar sem við erum með handa ykkur :)
E.s. það var bara betra að vera búin að fá möppurnar með öllum upplýsingunum og það sem fylgir svona félagi áður en við gátum farið að vinna að einhverju viti.....
*Með sól í hjarta og söng á vörum*
Kveðja Guðný (ritari nýju stjórnarinnar)
Guðný
26.3.2011 kl. 22:19
Hvar er nýja stjórnin.
Er ekkert í fréttum.
Er engin ferðaáætlun fyrir sumarið, ef hún er til hvar er hún.
Einar Steingrímsson
7.7.2010 kl. 12:19
Simaskrá
Ágætu félagar:
Vegna símaskrár sem er í vinnslu langar mig að biðja félaga um að senda mér þau númer sem þeir vilja að sett verði í skrána mest tvö númer, sem allra fyrst og senda þau á bodo25@simnet.is
kveðja frá Capri norðursins
Sigurður G Þórarinsson
4.7.2010 kl. 21:08
Tjaldstæði
Ég er alveg sammála þér Silli, þar sem flestir eru komnir með Útilegukortið.Enn er ekki orðið of seint að færa þessa útilegu. Hvað segir fólk um það??
Inda Marý
4.7.2010 kl. 16:27
Ágætu félagar:
Að gefnu tilefni langar mig að varpa fram smá hugleiðingu vegna næstu útilegu sem er í Dæli.Ég hef heyrt að sumir vilji frekar að farið verði á tjaldstæði þar sem útilegukortið gildir og bera því gjarnan við að kostnaður sé orðinn það mikill,bæði vegna langrar keyrslu og að borga svo tjaldstæðin fullu verði,en flestir eru að kaupa útilegukortið til að lækka hjá sér kostnaðinn.Persónulega fynnst mér þessi rök eiga fullan rétt á sér en einhverra hluta vegna veigrar fólk sér við því að hefja máls á þessu.
P.S. Ég er ekki að varpa þessu fram fyrir hönd stjórnar heldur sem einstaklingur í góðum félagsskap og vona að sem flestir láti nú álit sitt í ljós.
Sigurður G Þórarinsson
29.6.2010 kl. 20:43
Bílaraf /Gasþjónustan Hafnarfirði
Ég gleymdi að benda ykkur á heimasíðuna hjá Bílaraf sem er mjög góð bilaraf.is
Sigurður Þórarinsson
29.6.2010 kl. 20:30
Bílaraf /Gasþjónustan Hafnarfirði
Ágætu félagar. Mig langar til að benda ykkur á alveg frábært fyrirtæki sem ég skipti við um daginn.
Ég þurfti að láta skipta um tengil á bílnum hjá mér og fór þá í Bílaraf sem ég þekkti ekki neitt fyrr en ég leitaði til þeirra og réði nafnið þar mestu um.
Er skemmst frá því að segja að þeir tóku bílinn strax og gerðu það sem gera þurfti fljótt og örugglega.
Reikningurinn var vægast sagt mjög kúnna vænn.
Verslunin sem þeir eru með er alveg frábær og skora ég á ykkur félagar góðir að kíkja á hana, en þar fæst flest sem þarf fyrir ferðatæki þau sem við notum á Íslandi.Að lokum sakar ekki að nefna að þarna eru Eyjamenn sem ráða ríkjum, en það eru þeir feðgar Jóel og Siggi Jóels ásamt Didda ( sem er sonur Petru og Jóa sem var í Fjölverk í denn). Kær kveðja til ykkar allra Silli
Sigurður G Þórarinsson
23.6.2010 kl. 20:20
Hugmynd
Kæru félagar er staddur á Indriðastöðum í Skorradal sem er ágætisstaður lítið þjónustuhús með
tveimur WC sturtu einnig þvattavél og þurkari. Ég er með þá hugmynd að þeir sem eru svo heppin að vera með 3G pung (þetta er ekki brandari) myndu senda til síðuhaldara myndir af viðkomandi stöðum. T.d. ég er búinn að taka nokkrar myndit af svæðinu hér og sendi þær til Láru ef félögum líst vel á þessa hugmynd. Kv. Stjáni og Emma
Kristján Óskarsson
7.6.2010 kl. 0:23
Félagsfánar
Það er búið að láta útbúa félagsfána þeir er til sölu hjá Sigurði Friðbjörnss(Sigga)og kosta 1.000.-
Inda Marý
1.6.2010 kl. 18:12
Hæ,hæ
Gaman að fá svona upplýsingar um tjaldstæði,verum dugleg í sumar að segja frá okkar ferðum,takk Óskar og Edda.
Krissa
KG
31.5.2010 kl. 21:42
Kveðja
Góða kvöldið við Edda erum búin að vera á ferðinni fórum til Ólafsvíkur , Húsafell og Akranes alveg frábært að vera á Akranesi flott tjaldstæði, rafmagn innifalið eins þvottavél og þurrkari öll aðstaða til fyrirmyndar einnig var rafmagn innifalið í Ólafsvík erum núna á tjaldsvæðinu í Hafnarfyrði. Kveðja Óskar og Edda.
Óskar
13.5.2010 kl. 11:47
Skátastykki
Ég og Bangsímon mætum næstu helgi.
Gunnar Þorri
27.4.2010 kl. 20:13
Hreinsun
Heil og sæl góðir félagar.Ég vil byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs sumars og vona svo sannarlega að það verði ykkur öllum ánægjulegt. Mér datt svona í hug hvort við félagar í Heimakletti ættum að skoða þann möguleika að við gætum sett upp ferð fljótlega sem fyrstu skipulögðu ferð okkar þetta árið með því að fara austur undir Eyjafjöll og bjóða fram krafta okkar til aðstoðar við að hreinsa vikur og sína þannig nágrönnum okkar og vinum hinummegin sundsins samstöðu.
Sigurður Þórarinsson
23.2.2010 kl. 15:03
Útilegukortið
Var að skoða breytingar á Tjaldstæðum þar sem Útilegukortið gildir
það eru smá breytingar
það fer í sölu 1.mars
Smá ferðahugur komin í mann alltaf svo gott veður.
Inda Marý
24.12.2009 kl. 22:42
Gleðileg jól farsælt nytt ár takk fyrir það liðna Helgi og Marta
Helgi Sigurlásson
24.12.2009 kl. 17:21
Gleðileg jól og farsælt ferða ár takk fyrir það sem er að líða. Óskar og Edda
Óskar og Edda
24.12.2009 kl. 12:42
Jólakveðja
Kæru ferðafélagar!
Gleðileg jól farsælt nýtt ár.
Sjáumst á nýja árinu hress og kát.
Inda Marý
18.11.2009 kl. 17:11
Grill á laugardagskvöld
Grill á laugardagskvöld.
Við ætlum að koma saman á laugardagskvöld í Golfskálanum og grilla saman.
Mæting er fyrirhuguð á bilinu kl. 18:30 - 19:00
Hver mætir með sinn grillmat og sameiginlegt borðhald hefst kl. 20:00. Grill verða á staðnum.
Vonumst til að sjá sem flesta og við eigum skemmtilegt kvöld saman.
Kveðja stjórnin
2.10.2009 kl. 13:54
Útilega
Vegna veðurs hefur stjórnin ákveðið að aflýsa útilegunni suður í skátastykki um helgina.Í staðinn er verið að huga að haustfagnaði og verður það auglýst síðar.
Stjórnin
27.9.2009 kl. 16:37
Útilega í Skátastykki
Sælir félagar.
Þá er komið að haustútilegunni í Skátastykkinu helgina 2.-4. okt. nk.
Á föstudagskvöldinu ætlum við að hafa sameiginlegt grill og þá sér klúbburinn um kolin og hver kemur með sinn mat. Á laugardag er svo frjálst. Vonum við að sem flestir mæti og eigi skemmtilega helgi saman. Nýir félagsmenn eru velkomnir.
Kveðja stjórnin
Stjórnin
13.8.2009 kl. 22:14
Útilega á Hellu
Vegna mikils áhuga sem við höfum orðið var við höfum við ákveðið að skella á útilegu hjá klúbbnum helgina 21. - 23 ágúst( næstu helgi ) á Hellu.
Vonandi sjáum við sem flesta og eigum góða og skemmtilega helgi.
Kveðja, stjórnin.
Stjórnin
10.7.2009 kl. 23:30
Indriðastaðir..
Heimaey verður að öllu óbreittu með sína áhöfn á svæðinu
Einar og Guðný
8.7.2009 kl. 20:00
Þið getið einnig skráð ykkur í Indriðastaðaferðina hér í gestabókina :)
Kveðja Baui.
Baui
7.7.2009 kl. 14:54
Kæru félagar.
Nú líður að ferðinni okkar á Indriðastaði í Skorradal og viljum við því biðja þá sem ætla að mæta að skrá sig annaðhvort hjá Baua - 8931093 - baui@internet.is
eða Siggi F -8971158 - sigurdur@vsv.is.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Kveðja Baui
Baui
3.7.2009 kl. 23:09
Frábærar myndir:
Takk Lára fyrri frábærar myndir vildi að fleirri gætu gert þetta líka.
Kv. Áhöfnin á Heimaey..
Einar og Guðný
2.7.2009 kl. 14:06
sæl kæru félagar,þökkum góða helgi í Galtalæk,bara flott helgi ;-)
Esther og Dóri
29.6.2009 kl. 17:35
Tjaldstæði
Sæl kæru félagar, þakka góða helgi í Galtalæk frábært framtak Gúti, Eyrarbakki er komin á útilegukortið bara láta vita.
Lára og Viðar
23.6.2009 kl. 23:58
þökku frábæra helgi, sjáumst vonandi fleirri í næstu ferðum.
Tökum undir með Baua og Dísu notum síðuna okkar meira, með upplýsingu um allt og ekkert.
Áhöfnin á Heimaey.
Einar og Guðný
23.6.2009 kl. 21:26
Kæru félagar, þökkum fyrir frábæra daga í Galtalæk sl. helgi.
Vonumst til að sjá sem flesta á Indriðastöðum í júlí.
Kveðja Baui og Dísa.
(hvernig væri að fara að nota gestabókina aðeins meira :) :) )
Baui og Dísa
11.6.2009 kl. 23:12
tjalda.is
Hallo kæru félagar mig langar að benda ykkur á fróðlega heimasíðu tjalda.is
Silli
9.6.2009 kl. 23:47
umsögn
Komið sæl gott fólk,mig langar að gefa smá umsögn um tjaldstæðið í Stóra Klofa í Landssveit næsta bæ neðan við Galtalæk.Stæðinu er skip í 3 hólf svipuð að stærð og miðjuhólfin á Hellu og eru þau umlukin háum trjám þannig að skjól er þar gott,WC eru góð með heitu vatni og eru þvottavaskar líka utan á klósetthúsunum ekki sturtur.verð er 800 kr nóttin á mann og 600 kr á dag rafmagnið.Af 10 stigum mögulegum fær staðurinn 7 stig frá mér.Að lokum vil ég óska ykkur þess að sumarið verði ykkur öllum ánægjulegt ferðasumar og farið varlega svo ekkert skyggi á ánægjuna hjá okkur öllum í Heimakletti.
Bestu kveðjur til ykkar allra Silli
Sigurður Þórarinsson
8.6.2009 kl. 16:49
hæ hæ kæru félagar var að skrá okkur í ferðina Gaman saman sem verður eftir 10 daga.Flott heimasíða hjá þér systir;)
Esther og Dóri
8.6.2009 kl. 16:48
hæ hæ kæru félagar var að skrá okkur í ferðina Gaman saman sem verður eftir 10 daga.Flott heimasíða hjá þér systir;)
Esther og Dóri
8.6.2009 kl. 16:35
hæ hæ
halló
esther og Dóri
25.5.2009 kl. 12:04
meira um tjaldstæði
Fáum sama afslátt á Flúðum eins og önnur
húsvagnafélög.
Þurfum að sýna Heimakletts-skýrteininn
Einar Steingrímsson
10.5.2009 kl. 23:53
Tjaldstæði
ég vil byrja á að þakka þeim úr stjórninni sem talaði við tjaldvörðinn í Hveragerði og fékk sama afslátt og önnur húsvagnafélög hafa fengið. Vorum þar um helgina. Verðið er 750 á mann 400 fyrir rafmagn. Svo er það besta glóðvolgt bakkelsi á morgnanna með morgunmatnum. t.d. rúnstykki á 80 kall. frábært.
kv einar og guðný
Einar Steingrímsson
29.4.2009 kl. 22:01
Skátastykki
Kæru félagar.
Endilega skráið ykkur í útileguna í skátastykkinu ef þið ætlið að mæta.
Boðið verður upp á mat og því verðum við að gera áætlun um fjölda svo nóg verði til handa öllum.
Aðeins 11 vagnar eru skráðir enn sem komið er. Ef þið vitið um einhverja sem ekki hafa skráð sig en ætla að mæta, ýtið við þeim svo við höfum einhverja tölu :)
Baui
23.4.2009 kl. 11:37
afslættir á tjaldstæðum
Gleðilegt sumar öllsömul. Hefur stjórninn eitthvað athugað með afslætti á tjaldstæðum eins og húsbílafélögin eru að gera þessafagana. Gaman væri að fretta eithvað frá stjórninni hérna á síðunni.
kveðjur.
einar steingrímsson
23.4.2009 kl. 11:36
19.4.2009 kl. 22:01
Bara að kíkja, þorði ekki öððru en að kvitta fyrir.....svo maður verði ekki einn af þeim sem bara kíkja en kvitta ekki :-)
Guðný Halldórsdóttir
19.4.2009 kl. 21:52
Útilega í skátastykkinu
Tilkynning um útileguna í skátastykkinu kemur eftir helgina.
Baui
16.4.2009 kl. 12:54
'Utilega
Verður 1 til 3 mai
Helgi Sigurlásson
15.4.2009 kl. 22:28
Hvenar á útilegan í skátastykkinu að vera?
Reynir Jóhannesson
9.4.2009 kl. 20:44
Aðalfundur
Aðalfundur ferðaklúbbsins Heimakletts verður haldinn þriðjudaginn 14.apríl kl.20.00 í Golfskálanum
Sigurður
20.3.2009 kl. 14:17
Útilegukortið
Það er hægt að kaupa útilegukortið á netinu Hella og Blönduós hafa bæst inn enn nokkri eru hættir þar á meðal Þjósárver kortið kostar 11.900.- til 1. maí þá verður það selt á N1 og fl stöðum hækkar um 1000.-um að gera að drífa sig í að panta
Inda Marý
17.2.2009 kl. 17:36
Páskaferð
Eigum við ekki að fara í útilegu um páskanna hvernig líst fólki á það????
Inda Marý
13.2.2009 kl. 12:44
Nýtt ferðaár
Flott nýa útlitið á síðunni hjá þér Lára.
Er farin að hlakka til sumarsins,vonandi eigum við öll frábært ferðasumar í vændum.
Koma svo látum heyra í okkur.
Krissa
krissa
11.2.2009 kl. 12:24
flott breyting
flott breyting á síðunni hja þér Lára gaman ef allir kvittuðu fyrir kíkið.
Reynir Jóhannesson
9.2.2009 kl. 15:50
Lára flott hjá þér þessi breyting á síðunni félagar hvernig væri að láta
heyra frá sér eigum við Helgi að halda þessu uppi sorry Helgi enn þú ert samt skemmtilegur ha ha
Inda Marý
8.2.2009 kl. 21:37
Húrra
Sæl verið þið nú reynum við að hafa þetta svolitið líflekt kveðja Helgi Lása
Helgi Lása
7.2.2009 kl. 15:39
Bara prufa
Lára og Viðar
28.1.2009 kl. 16:31
Gleðilegt ár kæru ferðafélagar.
Verðum við ekki að fara að huga að páskunum það er eitthvað dauft yfir þessari síðu áfram Heimaklettur
Inda Marý
28.1.2009 kl. 16:30
Gleðilegt ár kæru ferðafélagar.
Verðum við ekki að fara að huga að páskunum það er eitthvað dauft yfir þessari síðu áfram Heimaklettur
Inda Marý
1.7.2008 kl. 22:47
Þökkum fyrir frábæra helgi á Úlfljótsvatni.Og þar er hægt að mæla með aðstöðunni sem þar er í boði.
guðrún hlín adolfsdóttir
24.6.2008 kl. 22:23
Tek heilshugar undir með Helga og hvet ykkur til þess að gefa tjaldstæðum einkun og setja inn upplýsingar sem nýst gæti öðrum.
Silli
24.6.2008 kl. 21:09
Tjaldstæði
Ágætu félagar nú þegar sumarið er komið og allir farnir að ferðast væri gaman ef þið settuð inná heimasíðuna okkar hvað ykkur fynnst um tjaldsæðin sem þið dveljið á t.d. verð,aðbúnað og aðra þá þjónustu sem við erum að borga fyrir.
Helgi Lása
31.5.2008 kl. 9:50
Gaman saman
Góðir félagar þá styttist óðum í það að við hittumst í árlegri útilegu sem kölluð hefur verið því skondnda nafni gaman saman. Megi þið öll eiga gott og farsælt ferðasumar og er það mín einlæg ósk og von að allir komist áfallalaust á leiðarenda um ókmna framtið.
Kveðja Silli
Sigurður Þórarinsson
5.5.2008 kl. 17:02
Sæl veri þið og takk fyrir síðast það gekk aldeilis vel hjá okkur fyrsta útilegan allir kátir og hressið veðrið lék við okkur eða þannig sjáumst næst við Úlfljóstsvatn
Inda Marý
30.4.2008 kl. 22:44
Vonumst eftir góðri mætingu verður ekki ágætt veður ?????Held það !!Sjáumst kát og hress í Skátastykkinu
Inda Marý
30.4.2008 kl. 10:54
Hverjir mæta
Hæ hæ, þá líður að því fyrsta helgin hérna heima. Hverjir ætla að mæta á miðvikudag?? Aðrir en Inda og Helgi :-)Hittumst.
Lára Emilsd.
28.4.2008 kl. 17:57
Komum líklega en þá á föstudag
Kv Magga Reynir
27.4.2008 kl. 19:27
23.4.2008 kl. 23:39
Ok sjáumst þá
Inda Marý
23.4.2008 kl. 22:33
Sorrí Inda átti það að vera
Helgi Lása
23.4.2008 kl. 22:30
Miðvikud
Sæl ynda ekki seinna en kl nitjánhundruð
Helgi Lása
22.4.2008 kl. 21:56
Helgi!!! eigum við að fara með húsin á miðvikudagskvöldið?? Hvernig væri að láta heyra í sér svo heimasíðan verið líflegri
Inda Marý
21.4.2008 kl. 10:00
Skátastykki
Komin heim með hjólhýsið bíðum spennt eftir að komast í fyrstu útileguna vonandi verður góð mæting
kveðja
Inda
Inda Marý
19.4.2008 kl. 22:36
Vor eða hvað
Já það er kominn fylingur tók vagninn út í gær og búinn að þvo og ættla að bóna á morgunn Bara gaman kveðja Helgi Lása
Helgi Sigurl´sson
19.4.2008 kl. 10:52
Útilega
Jæja nú styttist í fyrstu útileguna,ekki frá því að það sé komin smá tilhlökkun
fyrir henni og sumrinu í heild.
Vonum að sjá sem flesta í Skátastykkinu
eftir 13 daga.
Krissa og Silli
7.4.2008 kl. 22:56
Vill benda ykkur á ef þið hafið áhuga á að kaupa Útilegukortið
2008 getið þið pantað það hérna á síðu Heimakletts .Til1. maí greiðið þið 10.900.- eftir það 12.900.- sjáumst á Aðalfundinum 10.apríl kl.20.00
Inda Marý
11.11.2007 kl. 14:43
Hús á ferðalagi
Halló.
Gaman að lesa það sem skrifað er hér. Við vorum að fá okkur fasteign á hjólum. Lóan heitir hún og kveður burt snjóinn.
Sjáumst hress og kát í sumar.
Bless.
Tölvumst.
Gunnar Þorri
10.7.2007 kl. 17:56
Gott mál.
Sæl öllsömul það er gaman og gagnlegt að fá svona ábendingar eins og hún Eva skrifaði inn hérna í gestabókina það væri gaman og gagnlegt fyrir okkur að tala svona saman.
Meira svona :-)
kv. Lára
Lára Emilsd.
4.7.2007 kl. 12:33
Heil og sæl öll sömul.
Ég vil byrja á því að þakka fyrir vel heppnaða útilegu á Þórisstöðu um daginn,þá vil ég þakka þeim sérstklega sem sáu um hana þetta var þeim til sóma.
Sigurður Þórarinsson
4.7.2007 kl. 10:55
flott útilega
Sæl veri þið!!
Gaman að þessum myndum
þessi útilega hefur heppnast vel sýnist mér þetta verður vonandi endurtekið að ári vonandi getum við Siggi þá verið með.Hvernig væri að fleirri skrifi og tjái sig á þessari síðu sjáumst í Þjósárveri 20.júli vonandi sem flest. Kv Inda
Inda Marý Friðþjófsdóttir
13.6.2007 kl. 9:52
Stokkseyri
Ég fór í útilegu um helgina með 3 peyja með mér og var ferðinni heitið á Stokkseyri og mundi ég ráðleggja öllum öfum og ömmum að fara þangað með barnabörnin. Við birjuðum á því að fara í sund síðan í töfragarðinni og ætlaði ég ekki að ná þeim þaðan, síðan var farið í draugahúsið, Veiðisafnið, álfa og tröllasafn og restað á kæjökum um kvöldið og þvílíkt fjör. Tjaldstæðið er nú bara tún með litlum skúr á með klósetum en það eru innstungur þar inni svo maður kemst í rafmagn. það er nú meira en hægt er að segja um tjaldsvæðið á Geysi var þar um síðustu helgi þar er svipuð klósetaðstaða en ekkert rafmagn og að það skulu fara þarna 370 þúsund ferðamenn á ári kveðja Eva
Eva Andersen
4.6.2007 kl. 15:30
Flott framtak
Mér lýst vel á þetta hjá ykkur. Það verður vonandi hægt að smala einhverjum í útileguna 22-24 júní......sjáum hvað setur :)
Sigurjón Lýðs
24.5.2007 kl. 18:07
Innilega til hamingju með síðuna ykkar. Frábært að geta fylgst með ykkur á ferðum ykkar um landið. Vonandi sláumst við nú með í einhverja ferð. Annars er búið að hóta okkur að við fáum ekki að vera innan girðingar af því að við erum á fellihýsi en spurningin er hvoru megin við girðinguna ætlið þið að vera?
Sjáumst kannski um hvítasunnuna.
Síjú
Marta Smarta og Jói
Marta Krissu systir
23.5.2007 kl. 15:42
Hvernig er með ykkur félaga í Heimakletti er einhver stífla´hjá ykkur!!Við fórum nokkur saman í útilegu að Hellishólum í Fljótshlíð um helgina og viti menn það var mikið rok alla helgina verra enn var hjá okkur í skátastykkinu enn við lifðum þetta af það er aðal málið.Hvernig væri að þið færuð að skrifa svo ég verði ekki ein í þessu er ekkert að frétta af ykkur??Nú ættu fleiri að vita af síðunni síðan bréfið fór út látið heyra í ykkur.Kv Inda
Inda Marý Friðþjófsdóttir
8.5.2007 kl. 16:59
Hæ öll !!
Takk fyrir frábæra helgi þetta var skemmtilegt hjá okkur þó svo að það væri svolítill vindur á laugardeginum enn það gerði nú ekkert til eins og sjá má af myndunum við vorum greinilega í stuði þrátt fyrir það allavega má sjá það á mér. Jæja enn þetta var gaman við eigum vonandi eftir að hittast aftur í sumar . Kv Inda
Inda Marý Friðþjófsdóttir
26.4.2007 kl. 23:04
Flott framtak
Okkur líst vel á að taka tæknina í þjónustu "Heimakletts" og vonandi verður fólk duglegt að skrá á síðuna, bæði komment og fréttir.
Bestu kveðjur og hlökkum til að sjá ykkur í sumar
Guðný og Stjáni
25.4.2007 kl. 20:38
frábært
Til hamingju öll saman takk fyrir Lára förum á Egilstaði um helgina 20 stiga hiti
Helgi Sigurlásson
25.4.2007 kl. 10:59
Sammála Krissa!haha! Lára á heiður skilið enn eru karlarnir ekki ágætir við verðum að segja það.Vona að sem flestir notfæri sér þessa síður og komi skoðunum sínum á framfæri til hamingju öll.það verður æðislegt hjá okkur í sumar vonandi fáum við gott ferðaveður.
Inda Marý Friðþjófsdóttir
24.4.2007 kl. 23:59
Innilega til hamingju með heimasíðuna.Vonandi eigum frábært ferðasumar í vændum.
Lára,takk fyrir að drífa í heimasíðunni,vissi að það þyrfti
konu til ha,ha. Krissa
Krissa
24.4.2007 kl. 22:13
Sigurður Þórarinsson